Færslur: 2016 Nóvember

16.11.2016 22:33

Silfurleikar ÍR

Silfurleikar ÍR verða á laugardaginn 19. nóv.    Stjórn HSS hefur ákveðið að styrkja hvern keppanda sem keppir fyrir HSS um 2000kr. af keppnisgjaldinu.   Hrefna tekur við skráningum á mótið ef fleiri vilja keppa á mótinu.  Sendið skráninguna á hregud@hotmail.com



14.11.2016 22:51

Samvestæfing í Hafnarfirði.


Samæfing á vegum SamVest  

Eins og fram hefur komið í fréttum á FB-síðu SamVest, þá stefnum við að samæfingu haustsins í Kaplakrika - föstudaginn 18. nóvember 2016 kl. 17.00 - 20.00.

Æfingin er fyrir 10 ára og eldri á starfssvæði SamVest. 
Mætið með æfingaföt og innanhússíþróttaskó, gaddaskó þau sem eiga. 

Þjálfarar FH sjá um þjálfunina, mögulega þjálfarar frá okkar félögum líka.  
Nesti á æfingunni í boði SamVest. 
Eftir æfingu förum við saman og fáum okkur kvöldsnarl. 
Æfingin er þátttakendum að kostnaðarlausu, en hver og einn borgar fyrir sig í kvöldmatinn.

Hér má skrá þátttöku á sérstakt eyðublað - smellið hér. Endilega skráið sem allra fyrst - mætum sem flest og gerum þetta að góðri æfingu!! 

Athugið að laugardaginn 19. nóvember fara fram Silfurleikar ÍR - sjá upplýsingar hér. 
Á Silfurleikunum er í boði fjölþraut fyrir 9 ára og yngri, fjórþraut (60 m, 600 m, langstökk og kúluvarp) fyrir 10-11 ára og svo 6-7 keppnisgreinar að eigin vali fyrir 12 ára og uppí 17 ára. 
Hvert félag sér um skráningu sinna iðkenda, en hér er hlekkur á mótið í mótaforriti FRÍ.  

Með kveðju, 
SamVest, framkvæmdaráð 

  • 1
Flettingar í dag: 106
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 100
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 201888
Samtals gestir: 23499
Tölur uppfærðar: 9.5.2025 16:20:21