Blogghistorik: 2016 N/A Blog|Month_11
16.11.2016 22:33
Silfurleikar ÍR
Silfurleikar ÍR verða á laugardaginn 19. nóv. Stjórn HSS hefur ákveðið að styrkja hvern keppanda sem keppir fyrir HSS um 2000kr. af keppnisgjaldinu. Hrefna tekur við skráningum á mótið ef fleiri vilja keppa á mótinu. Sendið skráninguna á hregud@hotmail.com
N/A Blog|WrittenBy Vignir
14.11.2016 22:51
Samvestæfing í Hafnarfirði.
Samæfing á vegum SamVest
Eins og fram hefur komið í fréttum á FB-síðu SamVest, þá stefnum við að samæfingu haustsins í Kaplakrika - föstudaginn 18. nóvember 2016 kl. 17.00 - 20.00.
Æfingin er fyrir 10 ára og eldri á starfssvæði SamVest.
Mætið með æfingaföt og innanhússíþróttaskó, gaddaskó þau sem eiga.
Þjálfarar FH sjá um þjálfunina, mögulega þjálfarar frá okkar félögum líka.
Nesti á æfingunni í boði SamVest.
Eftir æfingu förum við saman og fáum okkur kvöldsnarl.
Æfingin er þátttakendum að kostnaðarlausu, en hver og einn borgar fyrir sig í kvöldmatinn.
Hér má skrá þátttöku á sérstakt eyðublað - smellið hér. Endilega skráið sem allra fyrst - mætum sem flest og gerum þetta að góðri æfingu!!
Athugið að laugardaginn 19. nóvember fara fram Silfurleikar ÍR - sjá upplýsingar hér.
Á Silfurleikunum er í boði fjölþraut fyrir 9 ára og yngri, fjórþraut (60 m, 600 m, langstökk og kúluvarp) fyrir 10-11 ára og svo 6-7 keppnisgreinar að eigin vali fyrir 12 ára og uppí 17 ára.
Hvert félag sér um skráningu sinna iðkenda, en hér er hlekkur á mótið í mótaforriti FRÍ.
Með kveðju,
SamVest, framkvæmdaráð
N/A Blog|WrittenBy Vignir
- 1
Antal sidvisningar idag: 596
Antal unika besökare idag: 83
Antal sidvisningar igår: 100
Antal unika besökare igår: 14
Totalt antal sidvisningar: 202378
Antal unika besökare totalt: 23560
Uppdaterat antal: 9.5.2025 19:10:32