24.04.2022 13:47
Þeir sem sjá um Ársþing HSS næstu ár
HSS félagaröð þeirra sem sjá um Ársþing HSS.
2018 Sundfélagið Grettir
2019 Leifur heppni
2020 Geislinn
2021 Skíðafélag Strandamanna
2022 Golfklúbbur Hólmavíkur
2023 Neistinn
2024 Sundfélagið Grettir
2025 Leifur heppni
2026 Geislinn
2027 Skíðafélag Strandamanna
2028 Golfklúbbur Hólmavíkur
2029 Neistinn
2030 Sundfélagið Grettir
2031 Leifur heppni
10.06.2020 21:53
Framkvæmdastjóri HSS ráðinn til árs.
Harpa Óskarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri HSS.
Samþykkt var á ársþingi HSS að framkvæmdastjóri yrði ráðin til árs.
Í 50% starfshlutfalli yfir sumarmánuðina en í 20% starfshlutfalli yfir veturinn.
Fögnum við því og væntum góðs af því fyrirkomulagi að ná samfellu í starf framkvæmdastjóra.
10.06.2020 21:52
Stjórn og ráð 2020
Stjórn og ráð kosin á 73. ársþingi HSS 10. júní í Félagsheimilinu á Hólmavík
Aðalstjórn
Formaður Hrafnhildur Skúladóttir
Varaformaður Jóhann Björn Arngrímsson
Gjaldkeri Ragnar Bragason
Ritari Finnur Ólafsson
MeðstjórnandiÓskar Torfason
Varamen
Varamaður Júlíus Jónsson
Varamaður Bjarnheiður Júlía Fossdal
Varamaður Henrike Sthueff
Varamaður Halldór Logi Friðgeirsson
Frjálsíþróttaráð
Aðalbjörg Óskarsdóttir
Sigríður Drífa Þórólfsdóttir
Angantýr Ernir Guðmundsson
Varamenn
Rósmundur Númason
Birna Ingimarsdóttir
Mótaráð
Júlíus Jónsson
Ragnheiður Birna Guðmundsdóttir
Henrike Stuheff
Varmenn
Hulda Þórisdóttir
Íris Guðbjörnsdóttir
Unglingalandsmótsnefnd
Hrafnhildur Skúladóttir
Vignir Rúnar Vignisson
Halldór Logi Friðgeirsson
15.05.2020 18:33
Héraðssamband Strandamanna auglýsir eftir framkvæmdastjóra fyrir komandi sumar
Héraðssamband Strandamanna auglýsir eftir framkvæmdastjóra fyrir komandi sumar
Starfið er fjölbreytt og lifandi og leitað er að drífandi einstaklingi.
Verkefni eru meðal annars að halda utan um mótaskipulagningu og framkvæmd þeirra sem og Götuhlaups HSS og sjá um skráningu í Felix, félagakerfi sem heldur utan um iðkendur og félaga.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 25.maí
Nánari upplýsingar um starfsfyrirkomulag og laun í síma 895 5509
eða í gegnum netfangið diggidigg@gmail.com
Kveðja
Hrafnhildur Skúladóttir
Formaður HSS
15.05.2020 18:22
Umsóknir um styrk úr Sérsjóði HSS
Á stjórnarfundi HSS fimmtudaginn 7. maí 2020 var eftirfarandi tillaga samþykkt.
Að umsóknarfrestur í sérsjóð HSS til 6.6.2020 vegna úthlutunarárs 2020.
Aðildarfélög HSS eru hvött til að sækja um í sérsjóð HSS. Vinsamlegast sendið umsóknir á netfangið: fyrir 6. júní 2020
Sérverkefnasjóður HSS
"66. ársþing HSS haldið á Sævangi þriðjudaginn 30. apríl 2013 samþykkir breytingu á reglugerð fyrir Sérverkefnasjóð HSS:
1. Í sérverkefnasjóð fer 10% af innkomu fé frá Lottói. Sjóðurinn er lagður á sérreikning og vextir leggjast við höfuðstól.
2. Félög geta sótt um til HSS fyrir 15. apríl ár hvert. Með umsókn fylgi greinargerð með fjárhagsáætlun ásamt tímaramma. Stjórnin tilkynni félögum fyrir 7. maí um afgreiðslu málsins. Fulltrúi stjórnar taki verkið út áður en greitt er úr sérsjóðnum eða lögð eru fram fullnægjandi gögn.
3. Ef féð verður ekki notað til verkefna sem sótt er um verður félagið að endurgreiða féð innan fjögurra mánaða frá áætluðum framkvæmdartíma.
Ef félag hafi ekki hafið framkvæmdir fyrir 15. apríl næsta ár, þarf félag að endurnýja umsóknina.
4. Forgangsverkefni væri að bæta íþróttaaðstöðu á svæðinu. Og veita til annarra verkefna svo sem þjálfunar, óvæntra áfalla, ferðakostnaðar á mót sem HSS fer ekki á, nýjungar í starfi og fleira."
21.10.2019 19:56
Samþykkt að veita íþróttabandalögum aðild að UMF
Fulltrúar sambandsaðila UMFÍ samþykktu á sambandsþingi UMFÍ síðdegis í dag með nær öllum atkvæðum umsókn íþróttabandalaga að UMFÍ. Við inngönguna fá íþróttabandalögin stöðu sambandsaðila innan UMFÍ.
Þau íþróttabandalög sem hafa staðfest umsókn sína eru Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR), Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) og Íþróttabandalag Akraness (ÍA).
Íþróttabandalögin þrjú eru boðin velkomin í hóp UMFÍ.
„Hreyfingin verður öflugri við þetta. Við horfum til framtíðar. Nú getum við sameinað krafta okkar og orðið öflugri samtök en áður,? segir Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ.
Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR, segir þetta frábæra niðurstöðu á þinginu: „Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að þetta sé leiðin að árangri. Ég hlakka mikið til að vinna með öllu þessu frábæra fólki í ungmennafélagshreyfingunni og læra af þeim. Saman getum við eflt íþrótta- og æskulýðsstarf í landinu.?
Sambandsþing UMFÍ fer fram á Laugarbakka í Miðfirði um helgina. Þar eru staddir yfir 100 fulltrúar allra 29 sambandsaðila UMFÍ um allt land.
Eftir samþykktina
- Þegar íþróttabandalög bætast við UMFÍ fá þau stöðu sambandsaðila á sama hátt og önnur íþróttahéruð landsins.
- Hvert og eitt bandalag þarf að sækja um inngöngu og geta þau sem ekki vilja gera það staðið utan UMFÍ.
- Félög UMFÍ með beina aðild munu áfram halda aðild sinni að UMFÍ en í gegnum íþróttabandalög á sama hátt og flest aðildarfélög UMFÍ í dag. Í þeim tilvikum þar sem íþróttabandalag hefur ekki sótt um aðild verður staða félags með beina aðild óbreytt.
- Með tillögum vinnuhóps um aðild hafa hagsmunir núverandi sambandsaðila varðandi lottó og fjölda þingfulltrúa verið tryggðir.
18.07.2019 09:48
Fyrsta héraðsmót HSS sem haldið hefur verið á Skeljavíkurgrundum fór fram miðvikudaginn 17. júlí. 40 keppendur tóku þátt í hinum ýmsu greinum. Talsverður vindur var en sagt er að það sé hluti af héraðsmótum HSS.
Ákveðið var á síðasta ásrþingi HSS að hafa héraðsmótið á virkum degi. Mótið gekk hratt og vel fyrir sig. Vil ég koma kærum þökkum til allra þeirra sem komu að mótinu. Júlíus Jónsson fyrir merkingar á vellinum, Hrafnhildur Skúladóttir formanni HSS fyrir allar reddingarnar og stuðningin, mótanefnd HSS (Aðalbjörg Óskarsdóttir) fyrir allt samþykkið og ráðleggingar, frjálsíþróttanefnd HSS Ragnheiður Birna fyrir þína aðstoð. Reynir Björnsson fyrir að redda slættinum. Allir þeir sem hjálpuðu við mælingar, tímatöku, ritarar og svo það allra mikilvægasta keppendurnir og áhorfendur. Án ykkar væri ekki hægt að halda svona mót.
Ef eitthvað sem betur mætti fara, vinsamlegast sendið okkur línu á framkvhss@mail.com allar ábendingar vel þegnar.
Framkvæmdastjóri HSS.
Sigríður Drífa
12.07.2019 09:30
Héraðsmót HSS
Héraðsmót HSS í frjálsum.
Á Skeljavíkur Grundum miðvikudaginn 17. júlí.
Mótið hefst kl. 17:00.
Við hvetjum alla krakka, konur og karla til að skrá sig og vera með!
Keppisgreinar eru eftirfarandi:
10 ára og yngri 60 m hlaup, langstökk, boltakast
Stelpur og strákar 11 ára 60m, 600 mhlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp, kringla og stpjótkast .
Telpur og piltar 12 - 13 ára: 60m, 600m hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp, kringla og spjótkast.
Meyjar og sveinar 14 - 15 ára: 100m, 800m hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp, kringlukast og spjótkast.
Konur og karlar: 100m, 800m, langstökk, hástökk, kúluvarp, kringlukast og spjótkast.
Karlar, 35 ára og eldri og konur 30 ára og eldri : 100m, 800m hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp, kringlukast og spjótkast.
Forsvarsmenn aðildarfélaganna taka við skráningum fyrir sitt félag.
Skráningu þarf að vera lokið fyrir kl. 13, miðvikudaginn 17. júlí.
Nánari upplýsinga veitir Sigríður Drífa í síma 8683640 eða netfang framkvhss@mail.com
Allir velkomnir
10.07.2019 13:53
Búið er að opna fyrir umsóknir í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ. Hægt er að senda inn umsóknir í sjóðinn til 1. október næstkomandi. Tilgangur sjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar, meðal annars með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi.
Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem gæti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfingunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum.
Umsóknarfrestir eru tveir á ári, 1. apríl og 1. október. Úthlutun fer fram sem næst 1. maí og 1. nóvember ár hvert.
Hafa má samband við framkvæmdastjóra HSS
09.07.2019 14:32
ULM19
Næsta Unglingalandsmót UMFÍ fer fram um verslunarmannahelgina, 1. - 4. ágúst 2019 á Höfn í Hornafirði.
Skráning og greiðsla
Skráning á Unglingalandsmót UMFÍ hefst 1. júli sl. Lokað verður fyrir skráningar á miðnætti 30. júlí.
Mótsgjald er 7.500 kr. á hvern einstakling 11 - 18 ára sem skráir sig til þátttöku. Greiða þarf gjaldið til að geta klárað skráningu. Aðrir mótsgestir greiða ekkert gjald en geta þó tekið þátt í fjölbreyttri afþreyingu og verkefnum sem boðið er upp á. Skráning og greiðsla fer í gegnum greiðsluþjónustukerfið NORA.
Stjórn HSS hefur ákveðið að greiða allt skráningargjaldið. Þeir sem hafa hug á að fara vinsamlegast látið framkvæmdastjóra HSS vita í tölvupósti framkvhss@mail.com eða eða í síma 8683640
08.07.2019 11:36
HSS fréttir
72. Ársþing Héraðssambands Strandamanna fór fram í félagsheimilinu Árnesi mánudaginn 3. júní síðasliðinn.
Þórey Dögg Ragnarsdóttir fékk viðurkenningu sem efnilegasti íþróttamaður HSS. Fyrir ástundun og elju i þjálfun og keppni á gönguskíðum
Ragnar Kristinn Bragason fékk viðurkenningu sem íþróttamaður ársins HSS. Fyrir ástundun, leiðbeiningar og keppni á gönguskíðum.
Félag eldri borgara í Strandasýslu fékk verðlaun fyrir vel unnin störf. Fyrir aukið starf eldri borgara, reglulegar gönguferðir er orðin fastur liður sem og æfingar í Boccia, auk þess sem styrktaræfingar í Flosabóli bættist við undir stjórn Ragnheiðar B. Guðmundsdóttur.
Ragnar og Þórey með viðurkenningarnar.
Ragnheiður B. Guðmundsdóttir ásamt félögum.
14. -17. Júní fór fram Smábæjarleikarnir á Blönduósi. Átti HSS eitt lið undir merkjum Geislans á Hólmavík. Talsverður aldursmunur var í liðininu þar sem fáir einstaklingar eru í hverjum árgang og seint farið í að leita til annarra félaga. Öll stóðu sig frábærlega þrátt fyrir að hafa tapað öllum leikjunum.
Iðkendur HSS hafa verið mjög duglegir við hreyfingar það sem af er sumri.
Skíðafélag Strandamanna er með fjölskyldu fjallgöngur á sunnudögum kl 13:00 þar sem gengið verður á ýmis fjöll eða leiðir í Strandabyggð, Reykhólasveit og Kaldrananeshreppi. Allir eru velkomnir með í þessar fjallgönguferðir óháð aldri og engin skylda að vera félagsmaður í Skíðafélag Strandamanna Hólmavík til að taka þátt.
Vikulegt sögurölt sem Sauðfjársetur á Ströndum og Byggðasafn Dalamanna standa fyrir í sumar. Sjá https://www.facebook.com/saudfjarsetur/
Geislinn er með æfingar í frjálsum, körfubolta og fótbolta. sjá https://www.facebook.com/Geislinn-432791440074688/
Gólfklúbbur Hólmavíkur er með flottan völl sjá https://www.facebook.com/groups/814630825571415/
Framundan í starfi HSS er héraðsmót sem verður haldið 17. júlí næst komandi einnig styttist í ULM19. Sjá https://www.ulm.is/
28.06.2019 07:47
Fótbolti
Polla- og pæjumót HSS fór fram fimmtudaginn 28.júní. 15 börn í þremur liðum tóku þátt. Talsverður vindur var og keppendur stóðu sig mjög vel og voru til fyrirmyndar. Þökkum kærlega fyrir daginn.
28.06.2019 07:44
Golfmot
Hamingjumót GHÓ verður haldið laugardaginn 29.júni á Skeljavíkurvelli. Allir velkomnir Golfklúbbur Hólmavíkur
25.06.2019 08:47
Mótadagskrá HSS
Samþykt var á ársþingi HSS tillaga mótadagskrár sumarsins 2019
27. júní Polla- og pæjumót á Skeljavíkurgrundum
28.-30. júní (Hamingjudagar) Golfmót
17.júlí Héraðsmót í frjálsum
1.-5. ágúst Unglingalandsmót Höfn í Hornafirði.
14. ágúst Barnamót HSS
4. september Sundmót
24.06.2019 14:48
Fótboltamót HSS
Polla- og pæjumót HSS verður haldið fimmtudaginn 27. júní kl 17:00 á Grundunum.