27.06.2011 10:38
Frábær árangur Strandamanna á Landsmóti 50+
Keppendur frá HSS gerðu góða ferð á Landsmót 50 ára og eldri sem fór fram á Hvammstanga nú um helgina. Hlaupagarpurinn Rósmundur Númason krækti sér í tvö silfur, annað í 60 metra hlaupi og hitt í 3000 m. hlaupi. Þá náði Rósi einnig í eitt brons í fjallaskokki í flokki 50 ára og eldri. Glæsilegur árangur þarna á ferðinni.
Hjónin Guðmundur Victor Gústafsson og Birna Richardsdóttir kepptu í golfkeppni mótsins og náðu glæsilegum árangri, Guðmundur Victor varð í öðru sæti karla og Birna endaði í þriðja sæti í kvennaflokki.
Stærsti hópurinn frá HSS keppti í bridge og náðu þar ágætum árangri. Önnur sveitin, skipuð þeim Karli Þór Björnssyni, Guðbrandi Björnssyni, Jóni Ólafssyni og Sigfinni lenti í fjórða sæti eftir að hafa verið í verðlaunasæti lengi fram eftir keppninni. Sveit skipuð þeim Ingimundi Pálssyni, Birni Pálssyni, Maríusi Kárasyni og Guðjóni Dalkvist urðu tíunda sæti.
Ingimundur Pálsson lét sér ekki nægja að keppa í briddsinu. Hann lét bæta sér við í keppni í dráttarvélaakstri á sunnudag og sá hreint ekki eftir því þar sem hann náði öðru sæti með glæsilegum akstri. Í efsta sæti varð Skúli Einarsson bóndi á Tannstaðabakka sem fór villulaust í gegnum brautina.
Við óskum okkar fólki innilega til hamingju með góðan árangur og óskum nágrönnum okkar í USVH einnig til hamingju með vel heppnað mótshald!

Skrifað af Arnar Snæberg Jónsson
Flettingar í dag: 1836
Gestir í dag: 143
Flettingar í gær: 1051
Gestir í gær: 123
Samtals flettingar: 225570
Samtals gestir: 26046
Tölur uppfærðar: 14.6.2025 17:44:22