22.05.2012 08:12

Sumarfjarnám 1. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun

Sumarfjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst 18. júní næstkomandi. Námið tekur 8 vikur og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu og er metið sem slíkt. Fjarnámið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa. Nemendur skila verkefni í hverri viku auk lokaverkefnis og krossaprófa. Skráning er til fim. 14. júní á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000. Þátttökugjald er kr. 24.000.- Allar frekari uppl. veitir sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 og á vidar@isi.is.

Flettingar í dag: 75
Gestir í dag: 19
Flettingar í gær: 1012
Gestir í gær: 140
Samtals flettingar: 377411
Samtals gestir: 34317
Tölur uppfærðar: 18.3.2026 05:41:50