07.04.2014 10:53

Sérsjóður HSS

Umsóknarfrestur í sérsjóð HSS rennur út 15. April n.k.  Meðfylgjandi er reglugerð sérsjóðsins en henni var lítilega breytt á síðasta þingi.

 

1. Í sérverkefnasjóð fer 10% af innkomu fé frá Lottói.

Sjóðurinn er lagður á sérreikning og vextir leggjast við höfuðstól.

2. Félög geta sótt um til HSS fyrir 15. apríl ár hvert.

Með umsókn fylgi greinargerð með fjárhagsáætlun ásamt tímaramma. Stjórnin

tilkynni félögum fyrir 7. maí um afgreiðslu málsins. Fulltrúi stjórnar taki verkið út áður

en greitt er úr sérsjóðnum eða lagt er fram fullnægjandi gögn.  

3. Ef féð verður ekki notað til verkefna sem sótt er um verður félagið að endurgreiða féð

innan fjögurra mánaða frá áætluðum framkvæmdartíma.

Ef félag hafi ekki hafið framkvæmdir fyrir 15. apríl næsta ár, þarf félag að endurnýja

umsóknina.
 

4. Forgangsverkefni væri að bæta íþróttaaðstöðu á svæðinu. Og veita til annarra

verkefna svo sem þjálfunar, óvæntra áfalla, ferðakostnaðar á mót sem HSS fer ekki á,

nýjungar í starfi og fleira.

Umsóknir berist til framkvæmdarstýru á póstfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is

Flettingar í dag: 102
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 662
Gestir í gær: 119
Samtals flettingar: 183130
Samtals gestir: 21863
Tölur uppfærðar: 5.4.2025 08:36:04