17.11.2014 14:43

Fótboltamót HSS og Hólmadrangs

Fótboltamót HSS

og Hólmadrangs



Innanhúsmót í fótbolta verður haldið í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík sunnudaginn 23. nóvember. Mótið hefst kl. 11:00.

Keppt verður í flokkum: 11 ára og yngri (6. bekkur og yngri), 12-14 ára (7.-9. bekkur), 15-18 ára (10.bekkur-18 ára).


Þátttökugjald er kr. 2.200 á hvern leikmann. Innifalið eru pizzur frá Cafe Riis og þátttökuverðlaun fyrir keppendur.

Félagsmiðstöðin Ozon mun selja veitingar á staðnum.

Þátttakendur skrái sig hjá sínum þjálfurum, sem senda skráningar á netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is. Einstaklingar geta einnig skráð sig með sama hætti. Þeim verður raðað í lið á staðnum.


Skráningu lýkur miðvikudaginn 19. nóvember.

 

Krakkar frá félagssvæði USVH (Hvammstanga) og UDN
(Dalir og Reykhólasveit) eru boðnir sérstaklega velkomnir ásamt krökkum á félagssvæði HSS.
 

 

Flettingar í dag: 365
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 112
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 248511
Samtals gestir: 27546
Tölur uppfærðar: 30.7.2025 17:51:55