28.12.2007 01:09
Skrifstofa
HSS hefur fengið til afnota húsnæði til að hafa skrifstofuaðstöðu. Hefur það verið ósk stjórnarmanna HSS lengi að komast í húsnæði og hefur Strandabyggð sýnt okkur þann velvilja að lána okkur aðstöðu í Félagsheimilinu á Hólmavík til þeirra hluta. Nú er verið að koma sér fyrir. Enginn formlegur opnunartími hefur verið ákveðinn en honum verður vonandi komið á með hækkandi sól.
Flettingar í dag: 288
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 372
Gestir í gær: 36
Samtals flettingar: 394201
Samtals gestir: 34822
Tölur uppfærðar: 21.4.2026 21:14:16
