02.01.2012 13:40
Strandamenn í sjónvarpinu
Eins og margir muna fór Landsmót 50 ára og eldri fram í fyrsta skipti á Hvammstanga síðasta vor. Strandamenn fjölmenntu á viðburðinn og náðu fínum árangri eins og sjá má með því að smella hér.
Á nýársdag var sýnd í Ríkissjónvarpinu skemmtileg heimildamynd um mótið og stemmninguna sem þar ríkti. Hægt er að horfa á myndina með því að smella hér, en í myndinni bregður að sjálfsögðu fyrir nokkrum kunnuglegum andlitum af Ströndunum og víðar.Landsmótið þótti takast afar vel, en keppendur voru á þriðja hundrað.
Landsmót 50 ára og eldri verður haldið í Mosfellsbæ helgina 8.-10. júní sumarið 2012.
Skrifað af Arnar Snæberg Jónsson
Flettingar í dag: 179
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 131
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 415771
Samtals gestir: 35402
Tölur uppfærðar: 31.5.2026 18:39:31
