12.03.2012 13:01

Skráið ykkur í Strandagönguna 17. mars!


Nú nálgast hin árlega Strandaganga, stærsti íþróttaviðburður sem haldinn er á Ströndum á ári hverju. Gangan fer fram laugardaginn 17. mars. 

Á vefsíðu Skíðafélags Strandamanna er byrjað að auglýsa eftir skráningum, en von er á frekari upplýsingum um gönguna á næstu dögum. Þar kemur fram að gott sé að fólk skrái sig sem fyrst til að auðvelda vinnu við undirbúning göngunnar. 

Senda skal eftirfarandi upplýsingar á netfangið sigrak@simnet.is:
Nafn keppanda
Hérað
Fæðingarár
Vegalengd 
Gsm símanúmer

Einnig er minnt á sveitakeppnina sem er í öllum vegalengdum. Í Selárdal er nægur snjór og ágætis aðstæður eins og staðan er í dag. Hægt er að hringja í Rósmund í s. 892-1048 eða Ragnar í s. 893-3592 til að fá nánari upplýsingar. 
 
Flettingar í dag: 28
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 286
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 397326
Samtals gestir: 34874
Tölur uppfærðar: 30.4.2026 02:17:17