13.08.2012 14:52

Umsóknarfrestur vegna Lýðháskóla að renna út


Eins og undanfarin ár styrkir Ungmennafélag Íslands ungt fólk til náms í Lýðháskólum í Danmörku. UMFÍ hefur gert samning við tíu skóla víðs vegar í Danmörku og er styrkurinn háður því að sótt sé um viðkomandi skóla. Allar upplýsingar um skólana má finna með því að smella hér

Umsóknarfrestur fyrir styrk á haustmisseri er til 15. ágúst

Fyrir nám á vorönn skal sækja um fyrir 1. desember. Frekari upplýsingar fást á Þjónustumiðstöð UMFÍ í Sigtúni 42 í síma 568-2929. Senda á styrkumsóknir á netfangið sabina@umfi.is.
Flettingar í dag: 463
Gestir í dag: 52
Flettingar í gær: 355
Gestir í gær: 20
Samtals flettingar: 392760
Samtals gestir: 34732
Tölur uppfærðar: 17.4.2026 13:44:27