08.08.2013 13:22
SamVest frjálsíþróttamót á Borgarnesi
SamVest mót í Borgarnesi þriðjud. 13. ágúst 2013
Héraðssamböndin
UDN, HSH, UMSB, HSS og HHF ásamt Ungmennafélaginu Skipaskaga og Ungmennafélagi
Kjalnesinga blása til SamVest-móts fyrir börn og unglinga. Mótið verður haldið á
Skallagrímsvelli í Borgarnesi og hefst kl. 17.00 (yngri hópar byrja).
Hér
er slegið saman í eitt öflugt mót, ágústmóti 10 ára og yngri, auk mótsins fyrir
11 ára og eldri sem vera átti í júní en var frestað vegna veðurs.
Aldurshópar
og keppnisgreinar eru:
8 ára
og yngri: 60 m hlaup, boltakast, langstökk og 400 m. hlaup
9-10
ára: Boltakast, 60 m. hlaup, langstökk og 600 m. hlaup
11-12
ára: 60 m hlaup, langstökk, kúluvarp, hástökk, 600 m hlaup
13-14 ára: hástökk, langstökk, 100 m hlaup, 800 m
hlaup , 60 m grindahlaup, kúluvarp,
kringlukast,
spjótkast.
15 ára:
kúluvarp, spjótkast, 100 m, langstökk, 800 m, kringlukast, hástökk, 100 m
grindahlaup
16
ára og eldri: kúluvarp, spjótkast, 100 m, langstökk, 800
m, kringlukast, hástökk, 100 m grind
Hægt verður að sjá skiptingu greina og
dagskrá mótsins í mótaforriti FRÍ
innan tíðar.
Stefnt er að því að grilla fyrir
mannskapinn í lok keppni.
Skráningar
berist í netfangið umsb@umsb.is eða til þjálfara á
viðkomandi stað í síðasta lagi fyrir
hádegi mánudaginn 12. ágúst.
Foreldrar
eru hvattir til að mæta með börnum sínum, það gefur mikinn stuðning.
Talsvert
af starfsfólki þarf á svona mót og biðjum við þá sem vilja og geta aðstoðað að
senda skilaboð um það á umsb@umsb.is
(með nafni og félagi).
Hlökkum til að sjá ykkur!
Með frjálsíþróttakveðju,
SamVest samstarfið
