07.02.2014 09:34

Skíðaæfingar

Skíðaæfingar

 

 

Skíðagönguæfingar hjá Skíðafélagi Strandamanna eru hafnar.  Allir eru velkomnir á æfingarnar, en á æfingunum er mikil áhersla lögð á skemmtilega skíðaleiki ásamt því að við æfum skíðagöngu bæði með hefðbundinni aðferð og frjálsri aðferð.  Einnig verða í vetur sérstakar þemaæfingar t.d. furðufataæfing í tengslum við öskudaginn, leikjahátíð, vinaæfing, fjölskyldudagur, óbyggðaferðir og hápunkturinn er að fara á Andrésar-andarleikana á Akureyri seinnipartinn í apríl.  Nánari upplýsingar um æfingar og starf Skíðafélags Strandamanna eru á heimasíðu félagsins skidafelag.123.is

Æfingatímar:

Miðvikudagar kl. 17.30-18.30

Föstudagar kl. 17-18.30

Sunnudagar kl. 14-15.30

Flettingar í dag: 129
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 131
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 415721
Samtals gestir: 35401
Tölur uppfærðar: 31.5.2026 16:00:14